1690
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1690 (MDCXC í rómverskum tölum) var 90. ár 17. aldar sem hófst á sunnudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en miðvikudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Klemus Bjarnason frá Ströndum var dæmdur á bálið fyrir galdra. Dómnum var síðan breytt í ævilanga útlegð. Þar með lauk brennuöld í Íslandssögunni.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 30. júní - Jón Vigfússon, Hólabiskup (f. 1643).
- 29. október - Þorleifur Jónsson, prestur í Odda. (f. 1619)
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 2. janúar - Ottómanveldið sigraði Serba og Austurríkismenn við Kaçanik-gljúfur. Yfir 30.000 Serbar flýðu norður.
- 6. janúar - Jósef, sonur Leópolds 1., var krýndur konungur Ungverjalands og konungur Rómverja.
- 14. janúar - Klarinettið var fundið upp í Nürnberg í Þýskalandi.
- 27. janúar - John Strong kom fyrstur Evrópubúa til Falklandseyja.
- 16. apríl - Bretar náðu yfirráðum yfir Port Royal í Nova Scotia þegar þeir knúðu Frakka til uppgjafar.
- 12. júlí - Orrustan við Boyne: Herir Vilhjálms 2. sigruðu her Jakobs 2. á Írlandi.
- 13. desember - Fyrsta skráða skipti sem Úranus sást frá jörðu.
- 20. desember - Fyrstu pappírsseðlarnir á Vesturlöndum voru prentaðir út í Massachusettsflóanýlendunni.
Ódagsettir atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Breska Austur-Indíafélagið fékk leyfi til að reisa virki á Húglífljóti þar sem Kalkútta reis síðar.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 22. janúar - Nicolas Lancret, franskur listmálari (d. 1743).
- 1. febrúar - Francesco Maria Veracini, ítalskt tónskáld (d. 1768).
- 28. október - Peter Wessel Tordenskiold, norskur flotaforingi (d. 1720).
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Christian Falster, danskur textafræðingur (d. 1752).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 22. febrúar - Charles Le Brun, franskur listamaður (f. 1619).
- 27. maí - Giovanni Legrenzi, ítalskt tónskáld (f. 1626).