Content-Length: 123893 | pFad | http://is.wikipedia.org/wiki/Jeremy_Bentham

Jeremy Bentham - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Jeremy Bentham

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vestræn heimspeki
Nýaldarheimspeki,
Heimspeki 18. aldar/
Heimspeki 19. aldar
Jeremy Bentham
Nafn: Jeremy Bentham
Fæddur: 15. febrúar 1748London á Englandi)
Látinn: 6. júní 1832 (84 ára) (í London á Englandi)
Skóli/hefð: Nytjastefna
Helstu ritverk: Introduction to Principles of Morals and Legislation (1780); Discourse on Civil and Penal Legislation (1802)
Helstu viðfangsefni: stjórnspeki, siðfræði, réttarheimspeki
Markverðar hugmyndir: Hámarkshamingjulögmálið
Áhrifavaldar: John Locke, David Hume, Montesquieu
Hafði áhrif á: James Mill, John Stuart Mill, Robert Owen, Michel Foucault

Jeremy Bentham (15. febrúar 17486. júní 1832) var enskur lögfræðingur, heimspekingur umbótamaður og afkastamikill rithöfundur. Faðir hans og föðurfaðir voru lögfræðingar og lögmenn (og gott ef ekki dómarar) og hann fór þessa sömu leið í menntun sinni en starfaði þó lítið sem ekkert við það þar sem hann tók stóran arf ungur og vann nær ekkert á sinni æfi. Hann var róttækur hugsuður og frumkvöðull í réttarheimspeki í hinum enskumælandi heimi. Hann er þekktastur fyrir að vera málsvari nytjastefnu í siðfræði.

Bentham var nokkuð áhrifamikill hugsuður, bæði vegna eigin skrifa og ekki síður í gegnum skrif nemenda og fylgjenda sinna víða um heim. Meðal þeirra var James Mill, en sonur hans, John Stuart Mill, er frægasti málsvari nytjastefnu í siðfræði; og Robert Owen, sem varð síðar upphafsmaður sósíalisma).

Bentham studdi persónufrelsi einstaklinga og athafnafrelsi og frjálst hagkerfi. Hann var einnig hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju, studdi málfrelsi, jafnrétti kynjanna, réttindi dýra, afnám þrælahalds og líkamsrefsinga (einnig í uppeldi barna), réttinn til skilnaðar, frjálsa verslun og viðurkenningu samkynhneigðar. Hann reit ennfremur grein gegn skattlagningu fjármagnstekna en hvort hans persónulega staða hafi þar haft hliðrun á dóm hans skal ósagt látið.

Bentham fór í Westminster skólann ungur að árum og lýsti skólanum sem lélegum stað fyrir kennslu. Þegar hann var tólf ára gamall fór hann í skóla drottningarinnar, Oxford. Hann útskrifaðist þaðan þremur árum seinna. Bentham fannst ekki meira koma til Oxford en hann sagði að staðurinn væri miðstöð fordóma, forrétinda og iðjuleysis. Að loknu námi í Oxford sótt hann dómstólinn King's Bench í Westminster Hall sem hluta af undirbúningi hans fyrir  lögfræði feril. Árið 1769 tók hann embættispróf í lögfræði en lögfræði ferill Bentham stóð aðeins yfir í stuttan tíma því sama ár uppgötvaði hann lögmál nytjanna sem segja má að hann hafi gert að sínu ævi starfi.[1][2]

Hann hefur oft verið bendlaður við að vera einn stofnenda UCL eða University College London, það er hinsvegar ekki rétt . Það er hins vegar rétt að sumir stofnenda skólans eins og James Mill og Henry Brougham sem hafi notast við hugmyndafræði Benthams við stofnun skólans. Þar má nefna skoðun Bentham´s um að menntun eigi að vera aðgengilegri fyrir fólk óháð kyni,lit eða stöðu innan samfélagsins, þar sem UCL var fyrsti Breski háskólin  til þess að hleypa öllum hópum að.[3]

Þess þá heldur er viðeigandi að Jeremy Bentham er varðveittur í byggingu UCL, beinagrind hans klædd fötum hans með vax eftirlíkingu af andliti hans er að finna í suðurhluta aðalbyggingar háskólans. En þessi undarlega varðveiting var að hans ósk.[3]

Framlög til hagfræðinnar

[breyta | breyta frumkóða]

Þó að Bentham hafi verið að eiga við vandamál siðferðis og laga þá hafa skrif hans haft áhrif á þróun hagfræðilegra kenninga.

Hann gaf nafnlaust út bókina "A Fragment on Government" þar sem hann skrifaði "it is the greatest happiness of the greatest number that is the measure of right and wrong". Þó að margir hafa dregið í efa að Bentham skrifaði þessi orð í gegnum tíðina, telja margir hann faðir nytjastefnunnar en hann skrifaði um að val einstaklinga sé rétt ef að það ylli hamingju en rangt ef það ylli eymd.[4]

Í þessum skrifum hans var ein af upphafs hugsunum um hvernig við getum flokkað nytjar eftir hinum ýmsu mælikvörðum og kemur með að vera mikið verk fyrir framtíða hagfræðinga. En kenningar um val einstaklinga á nytjum, velferðar hámörkun og aðrar nytja kenningar eiga að hluta til rætur sínar að rekja í hugmyndir hans um hvernig hamingja og eymd eru mælikvarðar á réttmæti.[5]

Í grein Bentham frá árinu 1829 um nytjahyggju benti Bentham á tvær bætingar á skilningi sínum á nytjalögmálinu (e. utility principle) það voru “reglan um að koma í veg fyrir vonbrigði reglan” og “mesta hamingju reglan”.

Í huga Bentham var óhamingjan sem varð til við missa eitthvað hafði meiri áhrif á einstakling heldur en hamingjan sem skapast af því að einhver græðir það sama. Að öðru óbreyttu mun minnkun á nytsemi hjá einum einstakling vegna þjófnaðar hafa meiri áhrif á hamingju hans en ávinningur af nytsemi hjá öðrum einstakling myndi hann vinna lotto af sömu peningalegu verðmætum. Bentham tók þó fram að ef sá sem tapar er ríkur einstaklingur eða sá sem græðir fátækur maður gildir þetta ekki. Almennt séð er þetta ástæðan afhverju Bentham gaf verndun eignarréttar samkvæmt lögum meiri forgang. [1]

  Þessi heimspekigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  1. 1,0 1,1 Crimmins, James E. (2024), Zalta, Edward N.; Nodelman, Uri (ritstjórar), „Jeremy Bentham“, The Stanford Encyclopedia of Philosophy (Fall 2024. útgáfa), Metaphysics Research Lab, Stanford University, sótt 8. september 2024
  2. „Bentham, Jeremy | Internet Encyclopedia of Philosophy“ (bandarísk enska). Sótt 8. september 2024.
  3. 3,0 3,1 „UCL Bentham Project“. web.archive.org. 1. janúar 2007. Afrit af upprunalegu geymt þann 1. janúar 2007. Sótt 8. september 2024.
  4. Crimmins, James E. (2024), Zalta, Edward N.; Nodelman, Uri (ritstjórar), „Jeremy Bentham“, The Stanford Encyclopedia of Philosophy (Fall 2024. útgáfa), Metaphysics Research Lab, Stanford University, sótt 8. september 2024
  5. Spiegel, Henry William (1991). The Growth of Economic Thought (enska). Duke University Press. ISBN 978-0-8223-0973-4.








ApplySandwichStrip

pFad - (p)hone/(F)rame/(a)nonymizer/(d)eclutterfier!      Saves Data!


--- a PPN by Garber Painting Akron. With Image Size Reduction included!

Fetched URL: http://is.wikipedia.org/wiki/Jeremy_Bentham

Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy