Fara í innihald

Enska borgarastyrjöldin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Enska borgarastyrjöldin
Hluti af þríríkjastríðunum
Dagsetning22. ágúst 1642 – 3. september 1651
Staðsetning
Konungdæmi Englands, Írlands, og Skotlands
Niðurstaða

Sigur þingssinna

Stríðsaðilar
Konungssinnar Þingssinnar
Leiðtogar
Mannfall og tjón
50.000[1] 34.000[1]
127.000 önnur dauðsföll, þar af 40.000 óbreyttir borgarar

Enska borgarastyrjöldin var röð vopnaðra átaka milli fylgismanna enska þingsins og fylgismanna konungs í Englandi 1642 til 1651. Fyrsta (1642-1646) og annað (1648-1649) borgarastríðið börðust stuðningsmenn Karls 1. við her Langa þingsins, en í þriðja borgarastríðinu (1649-1651) börðust stuðningsmenn Karls 2. við Afgangsþingið. Borgarastyrjöldinni lyktaði með sigri þingsins í orrustunni við Worcester 3. september 1651.

Afleiðingar borgarastyrjaldarinnar voru þær að Karl 1. var settur af og hálshöggvinn og sonur hans, Karl 2., hrakinn í útlegð. Í stað konungs tók Enska samveldið við 1649 til 1653 og síðan verndarríkið 1653 til 1659 sem var í raun einræði Olivers Cromwell. Einokun ensku biskupakirkjunnar á trúarlífi í landinu lauk, og sigurvegararnir styrktu enn í sessi yfirtöku mótmælenda á Írlandi. Borgarastyrjöldin festi í sessi þá hugmynd að breskir konungar gætu ekki ríkt án stuðnings þingsins (þingbundin konungsstjórn) þótt það væri ekki formlega staðfest fyrr en með dýrlegu byltingunni síðar á 17. öld.

Cromwell og lík Karls 1. Málverk eftir Paul Delaroche (1797-1859).

Ólíkt öðrum enskum borgarastyrjöldum, sem snerust fyrst og fremst um það hver skyldi verða konungur, snerist enska borgarastyrjöldin öðrum þræði um tegund stjórnarfars. Sumir sagnfræðingar vilja því nota hugtakið „enska byltingin“ um ensku borgarastyrjöldina.

  1. 1,0 1,1 „ENGLISH CIVIL WARS“. History.com. Sótt 4. október 2014.
  Þessi sögugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
pFad - Phonifier reborn

Pfad - The Proxy pFad of © 2024 Garber Painting. All rights reserved.

Note: This service is not intended for secure transactions such as banking, social media, email, or purchasing. Use at your own risk. We assume no liability whatsoever for broken pages.


Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy