Uli Hoeness (5. janúar1952 í Ulm) er þýskur fyrrverandi knattspyrnumaður, framkvæmdarstjóri Bayern München til margra ára og forseti félagsins síðan 2009.
Uli Hoeness (Ulrich Hoeneß) fæddist 1952 í þýsku borginni Ulm og hóf að æfa knattspyrnu á unga aldri í borginni, ásamt yngri bróður sínum, Dieter Hoeness. Þegar hann var 15 ára var hann orðinn fyrirliði unglingaliðs landsinsins. Árið 1970 hófu Hoeness bræður atvinnuferil sinn er þeir voru báðir keyptir til Bayern München. Ári seinna var Uli valinn í U-23 landsliðið. Með Bayern München lék hann í átta ár og var ýmist miðherji eða framherji. Fyrstu árin lék Gerd Müller með félaginu en þeir tveir voru eitt árangursríkasta markadúett í Þýskalandi á sínum tíma. Saman skoruðu þeir 53 mörk á leiktímabilinu 1971/72 og aftur 1972/73. Þetta met var ekki slegið fyrr en 2008/09 er leikmannadúett hjá Wolfsburg skoraði einu marki meira. Árið 1972 var Hoenss valinn í þýska landsliðið. Sama ár varð hann Evrópumeistari og síðan heimsmeistari tveimur árum síðar. Hoeness varð þýskur meistari með Bayern München 1972-74. Árið 1978 fór hann til Nürnberg en lék þar aðeins eitt tímabil. Hann endaði feril sinn þar, þá aðeins 27 ára gamall vegna krónískra meiðsla í hné. Strax eftir að hann lagði skóna á hilluna var hann ráðinn sem framkvæmdarstjóri hjá Bayern München. Hann er yngsti framkvæmdarstjóri knattspyrnufélags í Þýskalandi fyrr og síðar. Sem slíkur starfaði hann í 30 ár og átti virkan þátt í velgengni félagsins, ekki síst fjárhagslega. Í nóvember2009 var hann svo kosinn forseti Bayern München.