Fara í innihald

Listabókstafur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Listabókstafur er bókstafur sem notaðir eru til að einkenna framboðslista í kosningum. Það fyrirkomulag að flokkar hafi opinberlega viðurkenndan listabókstaf tíðkast aðeins í Danmörku, Færeyjum og Íslandi. Listabókstafir voru fyrst notaðir í kosningum til danska Landsþingsins árið 1901. Listabókstafir hafa mest vægi við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, en þar greiða kjósendur atkvæði með því að skrifa eða stimpla listabókstaf á auðan kjörseðil. Við venjulegar kosningar á kjördag eru listabókstafir prentaðir fyrir framan nafn stjórnmálasamtaka á kjörseðlum og kjósendur greiða atkvæði með því að merkja X við listabókstaf þess framboðs sem þeir kjósa. Listabókstafir eru gjarnan notaðir í auglýsingum og kynningarefni stjórnmálaflokka.[1]

Notkun listabókstafa á Íslandi var lengi vel lítt samræmd þannig að sami flokkurinn hafði jafnvel ólíka listabókstafi eftir sveitarfélögum og á milli kosninga en meiri festa komst á notkun stafanna um miðbik 20. aldar. Dómsmálaráðuneytið fer nú með úthlutun listabókstafa til stjórnmálasamtaka sem bjóða fram til Alþingis. Í sveitarstjórnarkosningum úthlutar yfirkjörstjórn í hverju sveitarfélagi listabókstöfum ef um er að ræða framboð sem ekki hafa boðið fram til Alþingis og koma þá þeir stafir ekki til greina sem nýttir eru af framboðum til Alþingis skv. auglýsingu dómsmálaráðuneytis.[2]

Listabókstafir Íslandi

[breyta | breyta frumkóða]

Á Íslandi hafa þau stjórnmálasamtök sem buðu fram í seinustu alþingiskosningum skráða listabókstafi. Önnur stjórnmálasamtök sem hyggjast bjóða fram til alþingis þurfa að sækja um skráningu á listabókstaf og þeirri umsókn þurfa að fylgja meðmæli a.m.k. 300 kjósenda.[3] Ef stjórnmálasamtök sem hafa skráðan listabókstaf bjóða ekki fram lista í alþingiskosningum þá fellur skráningin úr gildi og sækja þarf aftur um listabókstaf ef ætlunin er að bjóða aftur fram síðar. Eftirfarandi listabókstafir eru nú skráðir og nöfn þeirra stjórnmálasamtaka sem eiga nú fulltrúa á Alþingi eru feitletruð:

Nokkrir markverðir listabókstafir eldri framboða:

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Er einhver þörf á listabókstöfum? - mbl.is
  2. Úthlutun listabókstafa og heiti nýrra stjórnmálasamtaka Geymt 24 september 2021 í Wayback Machine - Dómsmálaráðuneytið
  3. Lög nr. 162/2006 um starfsemi stjórnmálasamtaka
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
pFad - Phonifier reborn

Pfad - The Proxy pFad of © 2024 Garber Painting. All rights reserved.

Note: This service is not intended for secure transactions such as banking, social media, email, or purchasing. Use at your own risk. We assume no liability whatsoever for broken pages.


Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy