Fara í innihald

Vegakerfið á Íslandi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þjóðvegur 1 á Íslandi eða Hringvegurinn liggur umhverfis landið.

Samkvæmt vegalögum skiptist vegakerfið á Íslandi upp í þjóðvegi, sveitarfélagsvegi, almenna stíga og einkavegi.[1][2]

Vegtegundir

[breyta | breyta frumkóða]

Þjóðvegir

[breyta | breyta frumkóða]

Þjóðvegir eru akvegir ætlaðir fyrir almenna umferð milli staða utan þéttbýlis. Þjóðvegir eru taldir upp í sérstakri vegaskrá. Þeim er viðhaldið með fjárveitingum úr ríkissjóði. Þeim er ætlað ásamt vegum sveitarfélaga, að mynda eðlilegt, samfellt vegakerfi til tengingar byggða landsins. Þjóðvegum er skipað í eftirfarandi flokka:

  • Stofnvegir eru hluti af grunnkerfi samgangna sem er skilgreint í samgönguáætlun. Stofnvegir tengja saman byggðir landsins og er ætlað að mynda kerfi vega er tengja þéttbýlisstaði með 100 íbúa eða fleiri. Til stofnvega teljast einnig umferðarmestu vegir er tengja sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Mikilvægir vegir á hálendinu fyrir flutninga og ferðaþjónustu teljast einnig til stofnvega en þeim er viðhaldið árstíðabundið og oft lokaðir að vetrum.
  • Tengivegir eru vegir utan þéttbýlis sem liggja milli stofnvega eða af stofnvegi á tengiveg. Þeir er a.m.k. 2 km langir, vegir sem tengja landsvegi við stofnvegakerfið. Hér eru einnig mikilvægir vegir að helstu flugvöllum, höfnum og ferjuhöfnum, ef þeir eru ekki stofnvegir. Stofnvegir eru líka í þjóðgörðum og vegir að fjölsóttum ferðamannastöðum utan þéttbýlis.
  • Héraðsvegir eru vegir sem liggja að býlum, starfrækslu atvinnufyrirtækja, kirkjustöðum, skólum og öðrum opinberum stofnunum í dreifbýli. Héraðsvegir eru í staðfestu skipulagi og taldir upp í vegaskrá. Jafnframt er heimilt að telja vegi að sumarbústaðahverfum með 30 bústaði eða fleiri sem héraðsvegi.
  • Landsvegir eru vegir yfir fjöll og heiðar sem ekki teljast til ofangreindra vegflokkum og aflagðir byggðavegir á eyðilendum. Þeir hafa oftast árstíðabundna umferð og hafa minna eftirliti og þjónustu en á öðrum þjóðvegum.

Sveitarfélagsvegir og almennir stígar

[breyta | breyta frumkóða]
  • Samkvæmt vegalögum eru sveitarfélagsvegir þeir vegir í þéttbýli sem ekki teljast til þjóðvega. Sveitarfélög sjá um þá enda eru þeir ætlaðir almenningi til frjálsrar umferðar.
  • Almennir stígar eru reiðstígar, göngu- og hjólreiðastígar sem ætlaðir eru almenningi til frjálsrar umferðar. Þeim er viðhaldið af sveitarfélögum eða af ríkinu.

Samgönguáætlun

[breyta | breyta frumkóða]

Alþingi markar heildarstefnu í samgöngumálum, svokallaða samgönguáætlun, til fimmtán ára. Þar er gerð grein fyrir stefnu ríkisins og helstu áætlunum í samgöngumálum. Samgönguáætlun tekur til fjáröflunar og útgjalda til flugmála, vegamála og siglingamála. Núverandi samgönguáætlun gildir fyrir árin 2019–2033. Henni fylgir síðar sérstök aðgerðaáætlun fyrir fyrsta tímabilið, 2019–2023.[3]

Fjögurra ára samgönguáætlunin er gerð til nánari sundurliðunar 12 ára áætlunarinnar og er endurskoðuð annað hvert ár. Sá hluti hennar er tekur til vegamála heitir vegáætlun.[4]

Vegagerðin

[breyta | breyta frumkóða]

Vegagerðin er veghaldari þjóðvega á Íslandi og hefur þar með forræði yfir þjóðvegum. Í sérstökum vegalögum sem sett vor til að stuðla að greiðum og öruggum samgöngum, segir um þjóðvegi:[5]

„Þjóðvegir eru þeir vegir sem ætlaðir eru almenningi til frjálsrar umferðar, haldið er við af fé ríkisins og upp eru taldir í vegaskrá. Þeir skulu ásamt sveitarfélagsvegum mynda eðlilegt, samfellt vegakerfi til tengingar byggða landsins.”

Yfirstjórn vegamála

[breyta | breyta frumkóða]

Yfirstjórn vegamála er á höndum samgönguráðherra. Vegagerðin sem er sjálfstæð ríkisstofnun, annast þátt ríkisins í framkvæmd vegalaga. Sérstök ríkisstofnun Samgöngustofa, annast síðan eftirlit með framkvæmd umferðaröryggisstjórnunar vegamannvirkja. Hún setur verklagsreglur um framkvæmd eftirlitsins.[6]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „80/2007: Vegalög“. Alþingi. Sótt 9. mars 2019.
  2. Vegagerðin (2012). „Vegakerfið 2012 - Kynningarrit“ (PDF). Vegagerðin. Sótt 8. mars 2019.
  3. „Stjórnarráðið | Samgönguáætlun 2019-2033“. www.stjornarradid.is. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. júní 2020. Sótt 9. mars 2019.
  4. „Vegáætlun“. Vegagerðin. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. mars 2019. Sótt 10. mars 2019.
  5. „80/2007: Vegalög“. Alþingi. Sótt 9. mars 2019.
  6. „80/2007: Vegalög“. Alþingi. Sótt 9. mars 2019.
pFad - Phonifier reborn

Pfad - The Proxy pFad of © 2024 Garber Painting. All rights reserved.

Note: This service is not intended for secure transactions such as banking, social media, email, or purchasing. Use at your own risk. We assume no liability whatsoever for broken pages.


Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy