Fara í innihald

Jacinto Benavente

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jacinto Benavente

Jacinto Benavente y Martínez (12. ágúst 186614. júlí 1954) var spænskt leikskáld sem kunnastur er fyrir að hljóta Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1922.

Ævi og störf

[breyta | breyta frumkóða]

Jacinto Benavente fæddist í Madríd, yngsti sonur þekkts barnalæknis. Hann sýndi ungur áhuga á leiklist við litla hrifningu föður síns sem barði allar slíka tilburði niður með harðri hendi. Olli þetta drengnum miklu hugarangri og fjallaði hann síðar um þunglyndi sitt í æsku. Að kröfu hins stranga föður hóf Benavente verkfræðinám árið 1882 en hvarf frá því þremur árum síðar þegar faðir hans lést. Þess í stað sneri Benavente sér að ferðalögum og ritstörfum.

Benavente og móðir hans voru afar náin og bjuggu þau saman allt þar til hún dó árið 1922. Sjálfur dó höfundurinn í hárri elli ókvæntur og barnlaus, sem varð til að ýta undir vangaveltur ýmissa bókmenntafræðinga um samkynhneigð hans.

Laust fyrir aldamótin 1900 sló Benavente í gegn sem leikskáld. Hann sendi frá sér leikrit í stríðum straumum og næstu áratugina lauk hann við tvö til þrjú verk á ári. Árið 1920 varð hann leikhússtjóri Þjóðleikhúss Spánar og tveimur árum síðar hlaut hann Nóbelsverðlaunin í bókmenntum, annar spænskra höfunda. Hann gat þó ekki tekið á móti verðlaununum í eigin persónu, þar sem hann var á sama tíma í leikferð um Argentínu.

Spænska borgarastyrjöldin setti strik í reikninginn hjá Benavente líkt og öðrum listamönnum. Hann reyndi að bera kápuna á báðum öxlum, studdi fasistastjórn Franco í orðu kveðnu og bar blak af samverkamönnum nasista í ræðu og riti. Engu að síður treystu fasistar honum illa vegna frjálslyndra viðhorfa hans fyrri stuðnings við Spænska lýðveldið. Fyrir vikið lentu verk hans stundum á svörtum lista en var hampað á öðrum tímum. Leikrit Benavente nutu alla tíð mikilla vinsælda meðal spænsks almennings, sem sem kann að hafa stuðlað að því að menntamenn og gagnrýnendur voru oft neikvæðir í þeirra garð.[1]

Sigríður Thorlacius þýddi leikverkið „Af litlu tilefni“ eftir Benavente og var það flutt í Ríkisútvarpinu árið 1971.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Jacinto Benavente, Encyclopedia.com, sótt 22. okt. 2020“.
pFad - Phonifier reborn

Pfad - The Proxy pFad of © 2024 Garber Painting. All rights reserved.

Note: This service is not intended for secure transactions such as banking, social media, email, or purchasing. Use at your own risk. We assume no liability whatsoever for broken pages.


Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy