Fara í innihald

Romain Rolland

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Romain Rolland árið 1914.

Romain Rolland (29. janúar 186630. desember 1944) var franskur rithöfundur, leikskáld og listsagnfræðingur sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1915.

Ævi og störf

[breyta | breyta frumkóða]

Romain Rolland var fæddur inn í stönduga sveitafjölskyldu sem gerði honum kleift að mennta sig án mikilla áhyggja af fjárhagnum. Hann hóf heimspekinám en útskrifaðist úr sagnfræði í háskóla áður en hann hélt til Rómarborgar að drekka í sig listir og menningu. Eftir komuna aftur til Frakklands lauk hann við doktorsritgerð á sviði tónlistarsögu og varð síðar fyrsti kennarinn á því sviði við Sorbonne-háskóla.

Í fræðiskrifum sínum og leikverkum kallaði Rolland eftir því að leikhúsið yrði "fært aftur til fólksins" með nýrri og lýðræðislegri nálgunum í framsetningu og efnisvali. Friðarstefnan var áberandi stef í verkum Rolland og var hann einn fárra franskra rithöfunda sem stigu með afgerandi hætti fram sem friðarsinnar í aðdraganda fyrri heimsstyrjaldarinnar, sem hann varði í sjálfskipaðri útlegð í Sviss. Sú ákvörðun átti vafalítið stóran þátt í að Rolland hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1915.

Kunnasta verk Rolland var sagnabálkurinn um Jóhann Kristófer (franska: Jean-Christophe) sem kom út í tíu bindum á árunum 1904-12. Hún lýsir ferli þýsks tónlistarmanns af belgískum ættum frá vöggu til grafar. Í sögunni lýsir höfundurinn rækilega viðhorfum sínum til listar og listsköpunar. Verkið kom út í íslenskri þýðingu Þórarins Björnssonar og Sigfúsar Daðasonar.

Árið 1923 hófst náinn vinskapur Rolland og austurríska sálfræðingsins Sigmund Freud. Þeir skiptust reglulega á bréfum meðan báðir lifðu og höfðu hugmyndir Rolland talsverð áhrif á kenningar hins síðarnefnda.

Annar náinn vinur Rolland var rithöfundurinn Stefan Zweig sem dáði Frakkann mjög og fór fögrum orðum um hann í bók sinni Veröld sem var.

Romain Rolland gerðist á efri árum mikill aðdáandi Sovétstjórnarinnar og var alla tíð gagnrýnislaus á stjórnarfar Stalíns. Hann lést í árslok 1944.

  • Natan Ausubel (1. maí 1945). „Romain Rolland - að leiðarlokum“. Tímarit Máls og menningar. bls. 76–81.
pFad - Phonifier reborn

Pfad - The Proxy pFad of © 2024 Garber Painting. All rights reserved.

Note: This service is not intended for secure transactions such as banking, social media, email, or purchasing. Use at your own risk. We assume no liability whatsoever for broken pages.


Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy